ÁVARP VIÐARS EGGERTSSONAR VIÐ ARNARHÓL


Enginn maður er eyland.


Til hamingju með það, að við erum samfélag. Í dag fögnum við því að við erum þjóð sem elskum og virðum hvert annað.


Hér stöndum við. VIÐ stöndum hér öll saman. Hvað getum við annað? Hvað getum við annað en fagnað? Þetta er stund gleðinnar, stund samstöðunnar.

Við stöndum saman og fögnum því að við höfum brotið á bak aftur fordóma og heimsku og látum okkur annt um hvert annað.


Í dag stöndum við saman. Í dag erum við eitt. Við erum þjóð. Við erum samfélag, sem hefur náð sátt um að virða hvert annað, skilja hvert annað. Þess vegna erum við að fagna.


Í dag er gleðidagur.


Í dag er gaman, saman.


Því að „enginn maður er eyland“.


Enginn maður er eyland.


Eyland er aðeins mold og grjót.


En þegar kemur að fólki, þegar kemur að því sem skiptir máli, þá stöndum við saman, sem eitt. Eins og hér í dag.

Fyrir það erum við óendanlega þakklát.
 
Við erum þakklát fyrir að vera í samfélagi, samfélagi sem sýnir hverjum og einum virðingu og erum stolt af því.

Þannig sigrumst við á áföllum lífsins, þannig verðum við stór.
 
JÁ – Svona stór!


Því saman lyftum við grettistaki. Saman erum við sterk. Saman byggjum við samfélag sem leyfir okkur öllum að njóta lífshamingju. Af því við erum aldrei svo smá í hugsun, aldrei svo smá í verki.


Enginn maður er eyland.


Heimurinn er svo stór og við erum – og verðum alltaf – hluti hans. Gleymum okkur því aldrei í eigin sjálfumgleði.

Gleymum okkur aldrei. Verum gjafmild í gnægð okkar. Verum gjafmild í fátækt okkar. Gleymum aldrei okkar minnsta bróður, né minnstu systur. Því meðan við komum saman hér í dag og gleðjumst, fögnum

– þjást aðrir, okkar bræður og systur um allan heim.

Fjölskyldur þurfa að sjá að baki ástvina sinna í tortímingu fordóma og haturs, – fyrir ástina og kærleikann, sem þeir bera brjósti.


Verum aldrei svo sjálfumglöð að við gleymum. Munum að friðurinn er brothættur. Vöndum okkur.


Látum okkur aðra varða.


Verum svona stór. Eins og við erum hér í dag.


Sofnum aldrei á verðinum.


Verum hugdjörf, hugrökk og bjóðum fordómum og heimsku byrginn – alltaf.


Líka núna, þegar harðnar á dalnum um stundarsakir hjá okkur. Þegar á móti blæs, reynir á umburðarlyndi okkar og samstöðu.
 
Gætum okkar því á eigin fordómum.
 
Verum stöðugt á verði. Verum stór í tilfinningu okkar fyrir öðrum.


Enginn maður er eyland!


Við eigum öll skilið að njóta gæsku. Höfum í huga orð skáldsins, sem sagði:


„Enginn maður er EYLAND, einhlítur sjálfur sér, sérhver maður er brot MEGINLANDSINS, hluti VERALDAR; ef sjávarbylgjur skola MOLDARHNEFA til hafs, minnkar Evrópa, engu síður en eitt ANNES væri, engu síður en ÓÐAL vina þinna eða SJÁLFS ÞÍN væri: DAUÐI sérhvers manns smækkar mig af því ég er íslunginn MANNKYNINU; spyr þú því aldrei hverjum KLUKKAN glymur, hún glymur þér.“ (Ernest Hemingway, þýðing: Halldór Laxness)


Takk! Takk fyrir að vera með okkur hér í dag. Takk!


Til hamingju með daginn, – við öll.

Viðar Eggertsson, leikstjóri

Viðar Eggertsson, Theater Director and play-write