Gay Pride - Hátíðahöld um allan heim


Það var í lok júní 1970 sem samkynhneigðir í New York og San Francisco fylktu liði á götum úti í fyrstu göngunum sem farnar voru til að minnast uppþotanna árið áður, helgina 27.-29. júlí í Greenwich Village í New York. Þær óeirðir marka tímamót í sögu lesbía og homma um allan hinn vestræna heim. Í fyrsta sinn tók okkar fólk á móti þegar að þeim var sótt – nýir tímar voru runnir upp. Á Íslandi hefur 27. júní auk þess sérstaklega sterka merkingu í huga margra því að þann dag árið 1996 gengu lög um staðfesta samvist samkynhneigðra í gildi hér á landi, og síðari lagabreytingar sem okkur varða hafa ætíð líka miðast við þann dag. Í fyrstu kenndu menn hátíðahöldin við lítinn en vinsælan bar, Stonewall Inn, sem stóð við Christopher Street númer 53 í New York. Síðar fengu þau nafnið „Christopher Street Day“ en smám saman var farið að kalla hátíðahöldin því nafni sem við þekkjum núna – „Gay Pride“.

Pride berst til Evrópu

Siðurinn barst brátt til Evrópu og þegar kom fram á tíunda áratug liðinnar aldar hafði losnað um tengslin við hina upphaflegu dagsetningu, síðustu helgina í júní. Nú ber þessa hátíð samkynhneigðra upp á flestar helgar sumarsins í hinum ýmsu borgum heimsins svo að fólk fái ferðast á milli staða til að sýna samstöðu og stuðning í verki sem víðast yfir sumarið.

Samskipti þeirra sem stóðu að hátíðahöldum um heiminn jukust jafnt og þétt og fólk skildi nauðsyn þess að miðla reynslu sinni og aðstoð við hátíðahöld stolts og sýnileika. InterPride, alþjóðasamtök Gay Pride hátíða urðu að veruleika í Bandaríkjunum árið 1982 og þróuðust síðar yfir í alþjóðasamtök skipuleggjenda hinsegin hátíða. Á heimsþingum InterPride er boðið upp á námskeið og reynslu miðlað þannig að reynsla skipuleggjendanna nýtist jafnt nýjum sem eldri hátíðum.

InterPride þingar árlega og velur borg til að halda svo kallað World Pride, þá hátíð sem athyglin beinist fyrst og fremst að hverju sinni. Sú fyrsta var haldin í Róm sumarið 2000, þegar kristnir menn héldu upp á að tvö þúsund ár voru frá því kristni skaut rótum í heiminum. World Pride var haldið öðru sinni í Jerúsalem árið 2006 og varð fyrir árásum leiðtoga allra trúarbragða sem fyrirfinnast í borginni helgu, sem sameinuðust í hatri á stórsamkomu á stærsta íþróttaleikvangi Jerúsalem.

Þannig urðu þau sögulegu tíðindi að trúarhreyfingar sem aldrei hafa getað komist að samkomulagi um friðsamlega sambúð, sameinuðust í einhuga hatri gegn samkynhneigðum, einmitt í þeirri borg sem öll helstu trúarbrögð heimsins halda í heiðri.

Stolt í alþjóðlegu samhengi

Hinsegin dagar í Reykjavík urðu formlegir aðilar að InterPride á þingi þeirra í Glasgow í október 1999 og voru gestgjafar ársþings InterPride sem haldið var hér á Íslandi haustið 2005.

Svipur hátíðahaldanna er næsta mismunandi frá landi til lands og raunar ólíkari en mann skyldi gruna. Í þeim löndum sem búa samkynhneigðum mest og best öryggi eru Gay Pride hátíðir sumarsins fullar af litum, lífi og fjöri eins og við höfum fengi að sjá í Reykjavík og er sú hátíð þó aðeins brot af þeirri skrautsýningu sem mætir gestum í milljónaborgum heimsins.

Um leið er hollt að muna að víða um heim snúast göngur samkynhneigðra upp í átök og uppþot líkt og í ríkjum gömlu Júgóslavíu þar sem lesbíum og hommum var misþyrmt af ungum hægrisinnuðum öfgamönnum þegar þau ætluðu í sína fyrstu Gay Pride göngu sögunnar um stræti Belgrad í júní 2001. Borgaryfirvöld víða í Austur-Evrópu hafa bannað hinsegin göngur og hátíðir. Til dæmis hafa borgaryfirvöld í Moskvu bannað gönguna allt frá árinu 2004 og látið árásir öfgafullra þjóðernissinna á ólöglegar göngur samkynhneigðra nánast óátaldar.

Með augun opin

Hinsegin dagar í Reykjavík fylgjast eins og kostur er með ástandi mannréttindamála samkynhneigðra í heiminum. Sérstök áhersla er lögð á að fylgjast með ástandinu í næstu nágrannaríkjum, til dæmis í Austur-Evrópu. Hinsegin dagar hafa sent mótmælabréf til borgarstjórna, forsætisráðherra og forseta í ýmsum ríkjum til að mótmæla banni við gleðigöngum samkynhneigðra og vakið athygli á skuldbindingum ríkja til að fylgja svæðisbundnum og alþjóðlegum samningum um mannréttindi.

Að öðlast mannréttindi fylgir ábyrgð og þess vegna gleyma Hinsegin dagar sér ekki í gleðinni og fögnuðinum yfir sigrum á eigin vettvangi.

Um leið og við fögnum öryggi okkar og fengnu frelsi, förum við út á götur Reykjavíkur annan laugardag í ágúst til að sýna samstöðu með systrum okkar og bræðrum í þeim ríkjum heims sem ennþá kúga, misþyrma og drepa fyrir þann „glæp“ að leggja ást á eigið kyn.