Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride

Lög félagsins

1. Heiti og hlutverk

1.1. Félagiđ heitir Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride, og hefur ađsetur í Reykjavík.


1.2.
Markmiđ félagsins er:

– ađ halda árlega hinsegin hátíđ í Reykjavík,

– ađ stuđla međ starfsemi sinni ađ vexti og viđgangi hinsegin menningar og félagslífs í íslensku samfélagi,

– ađ rćkta tengsl viđ erlendar hreyfingar Gay Pride hátíđa og taka ţátt í skipulögđu samstarfi viđ ţćr.


 

2. Félagsađild

2.1. Félagar geta allir ţeir gerst sem vilja styđja markmiđ félagsins og vinna ađ markmiđum ţess. Bćđi einstaklingar og félagasamtök geta gerst félagar.


2.2.
Félagar fá félagsskírteini sem gildi á milli ađalfunda. Ţeir einir teljast gildir félagar sem greitt hafa félagsgjöld.


2.3.
Stjórnin ber ábyrgđ á félagaskrá sem einungis er til afnota fyrir stjórn og starfsfólk félagsins.


 

3. Ađalfundur

3.1. Ađalfundur fer međ ćđsta ákvörđunarvald félagsins. Hann skal halda í byrjun árs, eigi síđar en 1. mars. Rétt til fundarsetu međ kosningarétt og kjörgengi hafa einungis félagar međ gilt félagsskírteini.


3.2.
Til ađalfundar skal bođa skriflega međ mánađar fyrirvara og um leiđ skal lýsa eftir frambođum til stjórnarkjörs. Frambođ skulu hafa borist stjórn skriflega viku fyrir ađalfund. Frambjóđendur skulu tilgreina ţau embćtti sem ţeir sćkjast eftir. Til ađ njóta kjörgengis til stjórnarkjörs skulu félagar hafa ađ minnsta kosti starfađ međ samstarfsnefnd ađ einni hátíđ Hinsegin daga. Kosiđ er um einstaklinga en ekki lista.


3.3.
Tillögur ađ lagabreytingum skulu hafa borist stjórn félagsins hálfum mánuđi fyrir ađalfund og ţćr kynntar fyrir félagsmönnum. Undanţegnar ţessum skilafresti eru tillögur sem lúta ađ orđalagi og formi en breyta á engan hátt efnislegu innihaldi laganna eđa áđur fram kominna tillagna.


3.4.
Verkefni ađalfundar eru:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

2. Skýrsla stjórnar

3. Reikningar fyrra árs. Drög ađ fjárhagsáćtlun nýs árs. Ákvörđun félagsgjalda.

4. Lagabreytingar

5. Kjör stjórnar og tveggja félagslegra endurskođenda.

6. Önnur mál

Ađalfundur telst lögmćtur sćki hann 10 félagsmenn hiđ fćsta.


 

4. Stjórn

4.1. Félagar kjósa stjórn á ađalfundi til ađ gegna embćttum forseta, ritara, gjaldkera, erindreka og framkvćmdastjóra. Hver stjórnarmađur er kosinn til tveggja ára í senn. Kosning skal vera leynileg.

Hver einstaklingur getur ekki gegnt sama embćtti í stjórn oftar en ţrjú kjörtímabil samfleytt (sex ár) og ekki átt samfellda setu í stjórn félagsins lengur en í fimm kjörtímabil (tíu ár). Eftir ađ hafa veriđ utan stjórnar í eitt kjörtímabil (tvö ár) verđur fyrrverandi stjórnarmađur sem áđur hefur setiđ hámarkstíma í stjórn, aftur kjörgengur til embćttis í stjórn.


4.2.
Stjórnin fer međ umbođ Hinsegin daga í Reykjavík – Gay Pride og ákvörđunarvald nćst ađalfundi og kemur fram fyrir hönd ţess.


4.3.
Ef einhver stjórnarmanna hverfur úr stjórn á kjörtímabili skal stjórnin skipa stađgengil hans úr röđum félagsmanna. Ef fleiri en tveir stjórnarmađur hverfa úr stjórn, skal stjórnin kalla til félagsfundar og efna ţar til kosninga um nýja stjórnarmenn til nćsta ađalfundar.


4.4.
Forseti er oddviti stjórnar og stýrir fundum hennar. Í samráđi viđ stjórn ber hann ábyrgđ á ađ starfsemi félagsins fari samkvćmt lögum. Ritari sér um ritun fundargerđa á stjórnarfundum og undirritar ţćr međ forseta; ritari gćtir einnig félagatals og stýrir fundum stjórnar í fjarveru forseta. Gjaldkeri ber ábyrgđ á fjárreiđum félagsins. Erindreki sér um liđsafnađ til verkefna og kynnir ţau fyrir félögum. Framkvćmdastjóri hefur umsjón međ framkvćmd verkefna sem fyrir liggja hverju sinni.


4.5.
Stjórnin skal halda minnst 5 stjórnarfundi á ári. Stjórnarfundir eru lögmćtir ef einfaldur meirihluti stjórnar er til stađar.


4.6.
Stjórn skipar starfsmenn og nefndir til einstakra verka eftir ţví sem ţurfa ţykir, svo sem til fjáröflunar, samskipta viđ fjölmiđla, göngustjórnar, dagskrárstjórnar hátíđahalda, ritstjórn vefsíđu og dagskrárrits. Stjórn ábyrgist gerđir ţessara ađila og fylgist međ ţví ađ settum lögum og starfsreglum sé fylgt. Stjórn hefur umbođ til ađ skipa launađ starfsfólk til tiltekinna verka.


 

5. Samstarfsnefnd

5.1. Samstarfsnefnd um Hinsegin daga starfar međ stjórn ađ verkefnum hvers árs. Allir félagar međ gilt félagsskírteini eiga rétt til ţátttöku í samstarfsnefnd. Halda skal skrá yfir virka félaga í samstarfsnefnd á hverju ári. Stjórn skal bođa til fundar í samstarfsnefnd og senda fundarbođ til félaga. Forseti stjórnar og/eđa fulltrúi hans stýrir fundum hennar og halda skal fundargerđir ţessara funda.

Samstarfsnefnd er stjórn til stuđnings og ađhalds, hún gerir tillögur til stjórnar og myndar kjarnann í framkvćmdaafli félagsins í samvinnu viđ stjórn. Samstarfsnefnd fer einungis međ tillögurétt en ákvörđunarvald milli ađalfunda er í höndum stjórnar.


 

6. Fjármál

6.1. Gjaldkeri hefur eftirlit međ öllum fjármunahreyfingum félagsins. Ţćr fara fram á banka­reikningum Hinsegin daga í Reykjavík – Gay Pride sem gjaldkeri gerir grein fyrir í ársreikningum á ađalfundi. Reikningsár félagsins miđast viđ almanaksáriđ.


6.2.
Gjaldkeri skal á ađalfundi leggja fram fjárhagsáćtlun sem fundurinn samţykkir. Stjórn er heimilt ađ endurskođa ţá fjárhagsáćtlun á starfsárinu og leggja hana fyrir fulltrúa í samstarfsnefnd til umrćđu og athugasemda.


6.3.
Verđi hagnađur af rekstri félagsins, skal stjórn árlega gera tillögur til ađalfundar um veitingu fjárstyrkja á nćsta starfsári í ţví skyni ađ efla menningar- og félagsstarf hinsegin fólks á Íslandi, skv. markmiđum félagsins eins og ţeim er lýst í grein 1.2., liđ 2.


 

7. Lagabreytingar og félagsslit

7.1. Lögum ţessum verđur ekki breytt nema međ samţykkt á ađalfundi og ţá međ einföldum meirihluta greiddra atkvćđa.


7.2.
Félagiđ verđur ekki lagt niđur nema međ samţykkt á ađalfundi sem hlotiđ hefur sömu međferđ og tillögur ađ lagabreytingum, og ţá međ 2/3 hluta greiddra atkvćđa. Eignir félagsins skulu ţá renna til skyldra félagasamtaka skv. ákvörđun fundarins. Ákvörđun um ađ leggja niđur félagiđ öđlast ţó ekki gildi nema hún sé stađfest á nýjum fundi sex mánuđum eftir ađalfund og ţá međ 2/3 hluta greiddra atkvćđa.


Lög ţessi voru samţykkt á ađalfundi 2007.

Síđari málsgrein í grein 4.1. var aukiđ viđ lögin á ađalfundi 2010.