Didda og Elsku Elvis á Hinsegin dögum

1.4.2007

Didda Jónsdóttir, skáldkona, söngvari, ruslakerling og margt annađ, mun trođa upp á Hinsegin dögum međ hljómsveit sinni Mina rakasta sinua Elvis, eđa ég ég elska ţig Elvis. Ţar munu Didda og hljómsveit endurlífga ţennan einstaka listamann rokksögunnar, áđur en Sarah Greenwood og hljómsveitin GSX stíga á sviđ á Dómó á fimmtudegi Pride. 

Mina rakastan sinua Elvis og Didda héldu sína fyrstu tónleika í febrúar 2007 til ađ safna fyrir sektargreiđslu barnsföđur Diddu á Jamćka, međ ţeim undraverđa árangri ađ hann var látinn laus úr fangelsi daginn eftir.

Í Mina rakasta sinua eru Rina frá Finnlandi, Ari Eldon, Ţór Eldon,  Kommi ađ ógleymdri Diddu sjálfri. En Didda er ein af hrjúfustu skáldum 20. og 21. aldanna á Íslandi og hefur m.a. ort um hverning er ađ ríđa út á götu og leikiđ í kvikmynd Sólveigar Anshback - Stormy Weather, sem vakti gífurlega athygli á kvikmyndahátíđinni í Cannes áriđ 2005.

Didda er handhafi fjölmargra viđurkenninga innanlands sem utan fyrir skáldskap sinn. Í hljómsveit hennar er einnig fólk sem orđiđ hefur fyrir frćgđ. Ţar ber e.t.v. fyrstan ađ nefna Ţór Eldon, fyrrverandi gítarleikara í Sykurmolunum, en einnig má telja til sögu óstýrilátan bróđur hans Ara Eldon, áđur í hljómsveitinni Bless og fleira,  Komma sem slegiđ hefur í gegn međ fleiri hljómsveitum en elstu menn muna, ađ ógleymdri Rínu sem er handhafi finnsku sálarinnar og tangósins á Íslandi. 



Öll hafa ţau slegiđ í gegn hvert á sinn hátt og ţađ er auđvitađ ţađ sem skiptir máli, eđa eins og segir í yfirlýsingunni:
 
Ţú ţarft ekki ađ vera frćgur til ađ vera góđur.

Muniđ ađ takmarkađur fjöldi kemst í húsiđ - miđar seldir í forsölu.