1.4.2007
QBoy, frægasti samkynhneigði hip-hop tónlistarmaðurinn í heiminum í dag, kemur fram á Hinsegin dögum í ágúst. Þessi ungi spænsk-enski tónlistarmaður, hefur á undraskömmum tíma náð að heilla almenning í Bretlandi og um allan heim, fyrir hnittna texta og tónlist og einlæga baráttu gegn hómófóbíu í breska skólakerfinu, en Channel 4 hefur nýlega sýnt heimildarmynd um það mál, þar sem QBoy er í aðalhlutverki.
Rapparinn QBoy hefur á undraskömmum tíma náð að verða einn vinsælasti tónlistarmaður nýjustu bylgjunnar í hip-hop heimininum. Þessi spænsk ættaði Breti hefur náð að heilla fólk um allan heim og tónlistar-skrípentar virðast ekki geta fengið nóg og eru algerlega heillaðir af þessum unga ofurhuga.
QBoy tróð nýlega upp með Boy George á hinum alræmda KoKo klúbbi í Lundúnum og er þessi misserin á tveimur tónleikatúrum um Bandaríkin. Annars vegar er um að ræða “Hinsegin bytlingartúrinn”, eða The Homo Revolution Tour” og hins vegar “Taktu upp hljóðnemann”, eða Pick Up the Mic College Tour, þar sem hann ferðast um Bandaríkin þver og endilöng með nýjustu og heitustu skemmtikröftum hip-hopsins vestanhafs.
QBoy hefur verið tilnefndur til hinna eftirsóttu G&LA verðlauna (Gay and Lesbian Award) sem listamaður ársins. Aðrir tilnefndir í þessum flokki eru Will Young og Stephen Gately. Þessum áfanga hefur QBoy náð þótt hann hafi aðeins gefið út eina smáskífu en hans fyrsta plata, Moxie, er væntanleg í búðir í maí.
Fjölmiðlar hafa sagt um QBoy:
Tjáningafullur, reyndur – mikilvægur og jákvæður áhrifavaldur í hip-hopinu – unun að horfa á… sjálfsöruggur, rogginn, sætur, gáfaður, hittinn, einstakur og skemmtilegur… nýtur virðingar allt frá rúmlega fertugum foreldrum sínum til heitustu hip-hopara… er mikilvæg og jákvæð fyrirmynd hjá ungu kynslóðinni… nýtt pólitískt afl… mölvar niður staðalmyndir hip-hopsins í hinsegin fjölmiðlum.
Hinn hughrakki og ákveðni listamaður hefur öðlast fastan sess í hip-hop menningarheiminum sem annars er þrúgaður af hómófóbíu. QBoy stendur með báða fætur á jörðinni eftir að hafa byrjað sem ritstjóri “gayhiphop.com”, skífuþeytir og einn talsmanna hinsegin hip-hop klúbbsins “Pac-Man”, einn af stofnendum hinsegin hip-hops sambandsins “QFam” og einn umtalaðasti hinsegin hip-hoparinn í heiminum í dag.
QBoy fæddist Basildon í Essexskíri á Englandi. Móðir hans er ensk en faðirinn spænskur. Hann ólst upp við erfið skilyrði og var stöðugt ofsóttur og lagður í einelti í skóla. En það varð til þess að hann snéri sér að tónlistinni, þá sérstaklega hip-hopinu, sem var honum bæði huggun og uppörvun. Hann var 18 ára þegar hann fór að heiman til að leggja stund á leiklist og nútíma dans næstu fjögur árin þar á eftir.
Að námi loknu, árið 2001, hitti hann DJMisterMaker, sem skapaði “gayhiphop.com” og upp úr því sambandi hljóðritaði QBoy sitt fyrsta rapp. Frægð QBoy hefur verið skjótfengin. Hann hefur meðal annars prítt forsíður níu tímarita, þeirra á meðal AXM árið 2006. Hann samdi lagið “A Deal With God” í tengslum við herferð gegn einelti, sem varð til þess að innanríkisráðuneytið í Bretlandi bauð honum að flytja erindi á ráðstefnu ráðuneytisins um félagslega fjölbreittni. Þetta leiddi síðan til þess að QBoy hefur komið fram hjá mörgum ungliðahreyfingum sem berjast gegn hómófóbíu í skólum og náinnar samvinnu við góðgerðarsamtökin “Schools OUT og “BeatBullying”, en hann er verndari þeirra síðarnefndu.
Taktu upp hljóðnemann
Vorið 2006 sótti hann frumsýningu á hinni byltingarkenndu hip-hop kvikmynd “Pic Up the Mic” á Hinsegin kvikmyndahátíðinni í Lundúnum, en hann leikur stórt hlutverk í myndinni, sem slegið hefur í gegn á Hinsegin kvikmyndahátíðum um allan heim. Hann lét aftur á móti ekki nægja að leika í myndinni. Hann var einnig einn aðalskipuleggjenda stórsamkvæmis á eftir frumsýningunni, þar sem hann tróð einnig upp við mikinn fögnuð allra viðstaddra.
Síðast liðið sumar kom Qboy fram á aðalsviði EuroPride á Trafalgar-torgi í Lundúnum en eftir það hélt hann í sína fyrstu hljómleikaferð um Bandaríkin og kom fram á tónleikum í Los Angeles, Fíladelfíu, Chicago og New York. Í þessari ferð tók hann upp fyrsta myndbandið sitt, “Is Just So Fly”, í leikstjórn hins heimsfræga Ástrala Jarrah Gurrie og tískuljósmyndarans Nicolas Wagner.
Frábærir hæfileikar Qboy til að láta hlutina gerast, sýndu sig þegar hann skipulagði Evrópsku homo-hop hátíðina, “Peace OUT-UK”, öðru sinni á seinni hluta síðasta árs. Þrátt fyrir allar þessar annir hefur Qboy fundið tíma til að hljóðrita sína fyrstu breiðskífu, Moxie, sem aðdáendur hafa lengi kallað eftir. Aðdáendur hans eru raunar svo óþolinmóðir að nú þegar má finna götuútgáfu af plötunni undir nafninu “Remixes Don’t Count – the Mixtape”, sem hefur að geyma sjóræningjaútgáfur og endurhljóðblandaðar útgáfur af lögum hans.
Nýverið stýrði QBoy þætti á bresku sjónvarpsstöðinni Channel 4, “Coming Out To Class”, sem frumsýndur var á sjónvarpsstöðinni hinn 26. febrúar síðast liðinn, sem fjallar um reynslu samkynhneigðra í breska skólakerfinu. Þátturinn fjallar m.a. um lítinn stuðning yfirvalda við samkynhneigða í skólakerfinu og ögrar yfirvöldum til að taka sig saman í andlitinu og skapa öryggi fyrir samkynhneigða unglinga í breska skólakerfinu.
Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um Qboy á eftirfarandi heimasíðum: www.qboy.co.uk og www.myspace.com/supaboyq
Upplýsingar um tónleikaferðir QBoy í Bandaríkjunum má finna á www.pickupthemic.com og www.homorevolution.com
Myndir: Greg Fredrick, teknar af MySpace heimasíðu QBoy.