22.3.2007
Borgarstjórinn í Reykjavík, Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson, og forseti Hinsegin daga í Reykjavík, Ţorvaldur Kristinsson, undirrituđu í ráđhúsinu í dag nýjan ţriggja ára samstarfssamning. Í samningnum felst ađ Reykjavíkurborg styrkir Hinsegin daga um fjórar milljónir króna á ári nćstu ţrjú árin.
Hinsegin dagar taka ađ sér í samsvinnu viđ Höfuđborgarstofu, sem er framkvćmdarađili borgarinnar á samningnum, ađ halda útihátíđ í Reykjavík ár hvert sem er opin öllum borgarbúum og leggur sig fram um ađ kynna Reykjavík sem borg jafnréttis og menningar jafnt innanlands sem utan.
Reykjavíkurborg hefur frá upphafi veriđ ađalbakhjarl Hinsegin daga. Allt frá árinu 2000 hafa stjórnvöld í borginni sýnt hátíđinni mikinn skilning og hvatt forráđafólk hátíđarinnar áfram. Fyrsti langtíma samningur milli Hinsegin daga og borgarinnar var gerđur til ţriggja ára áriđ 2003 og hljóđađi hann upp á 1,6 milljónir króna á ári. Hćkkun framlags Reykjavíkurborgar nú er ţví vegleg, eđa um 150 prósent og sýnir stađfastan stuđning og ţá trú ráđamanna í borginni ađ Hinsegin dagar séu mikilvćgir í íslensku menningarlífi.
Aukinn stuđningur Reykjavíkurborgar gerir Hinsegin dögum kleift ađ standa enn betur ađ uppsetningu og kynningu á hátíđinni. Hinsegin dagar hafa á níu árum vaxiđ frá ţví ađ vera eins dags hátíđ međ 1.500 gestum, í fjögurra daga hátíđ međ yfir 50 ţúsund gesti. Ţetta hefđi ekki veriđ hćgt án stuđnings og mikils velvilja Reykjavíkurborgar.
Hinsegin dagar fara fram dagana 9. – 12. ágúst í ár. Ađ venju koma fjölmargir innlendir og erlendir listamenn fram á hátíđinni, en í ár ber fremstan ađ telja hinn heimsfrćga Jimmy Somerville.
Á efri myndinni undirrita Ţorvaldur Kristinsson forseti Hinsegin daga (t.v.) og Vilhjálmur Ţ. Vilhjálmsson borgarstjóri samstarfssamninginn. Á milli ţeirra situr drottningin af Viđey, sem vottađi samninginn. Á neđri myndinni sést ađ auki Heimir Már Pétursson.
Myndir: Sverrir