1.3.2007
Sarah Greenwood og hljómsveit hennar GSX verđa á Hinsegin dögum 2007. Dagskráin er smátt og smátt ađ fćđast og bráđlega verđur greint frá heimsfrćgum söngvara sem einnig mun koma fram á Hinsegin dögum.
Ţrátt fyrir ungan aldur er Sarah engin viđvaningur á tónlistarsviđinu. Undanfarin misseri hefur hún tryllt bćđi gay senuna og streit-rokksenuna í New York og er spáđ skjótum frama í rokkheiminum. Hún er langt í frá ađ vera pempía, rokkiđ hennar og GSX er eins hart og hrjúft og ţađ getur veriđ. Henni er gjarnan líkt viđ Chrissie Hynde og textalega er hún sett á bekk međ ekki ómerkilegri tónlistarmönnum en Lou Reed og Patti Smith.
Hinsegin dagar lofa ţví ađ ţađ sofnar engin undir tónlist og sviđsframkomu Söru og hljómsveitar hennar. Hún er lesbía og leiđtogi hljómsveitar sem ađ öđru leyti er skipuđ karlmönnum. Ţeir eru heldur ekki af verri endanum. Trymbillinn Tony Graci kom t.d. ađ tónlistinni í kvikmyndinni Natural Born Killers. Ađrir hljómsveitarmeđlimir eru AJ Maltese á bassa og John Andrews á gítar en sjálf spilar Sarah líka á gítar og syngur.
Sarah fćddist í Sviss og byrjađi ađ trođa upp ađeins fimm ára gömul. Ţegar hún var 13 ára stofnađi hún sína fyrstu hljómsveit sem flutti frumsamin lög hennar. Hún hefur alla tíđ veriđ uppreisnarseggur og félagslegur útúrsnúningur og ţegar hún lauk menntaskóla, flúđi hún kyrrstöđuna í Sviss og hóf tónlistarnám í hinum virta Berklee tónlsitarháskóla í Boston, ţar sem hún hlaut fjölda viđurkenninga fyrir höfundarverk sín.
En ţađ var rokkiđ sem átti hug hennar allan og nú ferđast hún um Bandaríkin ţver og endilöng međ hljómsveit sinni á milli ţess sem hún hrćrir upp í tónlistarlífinu í New York. Hljómsveitin hennar, GSX, hefur nýlega gefiđ út sína fyrstu plötu, Manifest, og alvöru tónlistargagnrýnendur spá ţví ađ hún verđi komin upp í efstu hćđir rokkheimsins innan örfárra ára. Tónleikar hljómsveitarinnar á Hinsegin dögum eru ţeir fyrstu utan Bandaríkjanna og ţví mikill happafengur fyrir unnendur grófasta, illasta og hreinasta rokks sem fyrir finnst hverju sinni.
Hćgt er ađ heyra tóndćmi og kynnast Söru og hljómsveit hennar betur á my-speisinu ţeirra.