24.2.2007
Ný fimm manna stjórn Hinsegin daga í Reykjavík - Gay Pride var kosin á ađalfundi félagsins sem haldinn var laugardaginn 24. febrúar. Ţá samţykkti ađalfundurinn ný lög fyrir Hinsegin daga, sem fela í sér ađ nú er í fyrsta skipti kosin fimm manna stjórn yfir félaginu, sem tekur ađ sér skilgreind verkefni sem hingađ til hafa veriđ ákveđin af samstarfsnefnd.
Samstarfsnefnd starfar áfram en samkvćmt gömlu lögunum fór hún međ ćđsta vald innan Hinsegin daga. Hún var skipuđ fulltrúum frá félögum samkynhneigđra og tvíkynhneigđra, eins og Samtökunum 78, MSC, FSS og KMK. Samkvćmt nýju lögunum fer ađalfundur hins vegar međ ćđsta vald innan félagsins og stjórn milli ađalfunda.
Hina nýju stjórn skipa: Ţorvaldur Kristinsson forseti, Ţórarinn Ţór gjaldkeri, Kristín Sćvarsdóttir ritari, Katrín Jónsdóttir erindreki og Heimir Már Pétursson framkvćmdastjóri.
Stjórn Hinsegin daga hvetur fólk til ađ gerast félagar en félagsgjald er ađeins 500 krónur. Ţegar fram líđa stundir munu ýmis fríđindi fylgja ţví ađ vera félagi, s.s. eins og afslćttir hjá ýmsum fyrirtćkjum og hjá Hinsegin dögum. Til ađ gerast félagar sendiđ upplýsingar um nafn, heimilisfang og kennitölu ásamt upplýsingum um greiđslu til Hinsegin daga.