Fjögurra daga hinsegin hátíđ

16.7.2005

Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride verđa haldnir í sjöunda skipti dagana 4. – 7. ágúst nćstkomandi. Hátíđin stćkkar á alla kanta og er nú orđin fjögurra daga hátíđ. Fimmtudaginn 4. ágúst verđur Dívukvöld á NASA , ţar sem ein vinsćlasta söngkona Skota, Carol Laula, kemur fram ásamt hinni upprennandi stjörnu Evu Karlottu.

Opnunarhátíđ Hinsegin daga fer fram í Loftkastalanum föstudaginn 5. ágúst kl. 20:30, ţar sem fram koma Carol Laula, hamskiptingar frá San Francisco , drottningar frá hommaleikhúsinu Hégóma, tvíeykiđ Tarnín, Rut & Vigdís frá Osló og Namosh frá Berlín. Ađ lokinni opnunarhátíđ er gestum bođiđ í Pride-partý í anddyri Loftkastalans. Ađ ţví loknu verđur stelpnadansleikur í Iđnó og strákadansleikur á Pravda. Eingöngu stelpum verđur hleypt inn í Iđnó og ađeins strákum inn á Pravda ţetta kvöld.

Hápunktur hátíđarinnar er glćsilega gleđiganga sem leggur af stađ frá Hlemmi laugardaginn 6. ágúst kl. 15:00. Ađ göngu lokinni hefst glćsileg dagskrá á sviđi Hinsegin daga í Lćkjargötu. Um kvöldiđ verđa hinsegin dansleikir á NASA, PRAVDA og á Nelly’s. Hinsegin dögum lýkur svo međ knattspyrnuleik á KR-vellinum, á milli íslenskra stelpna og strákaliđs frá New York. Ţetta er nýjung hjá Hinsegin dögum og um ađ gera ađ mćta á völlinn og hvetja stelpurnar. Mikil ađsókn er í ađ vera međ formleg atriđi í gleđigöngunni en ţeir sem óska eftir ţví verđa ađ sćkja um ţađ til samstarfsnefndar Hinsegin daga fyrir 3. ágúst, međ ţví ađ hringja í göngustjóra. Byrjađ verđur ađ setja gönguna saman á Rauđarárstíg viđ Hlemm kl. 13:00 og ţá verđa allir sem eru međ atriđi ađ mćta. Gleđigangan leggur stundvíslega af stađ kl. 15:00 sem leiđ liggur niđur Laugaveg og Bankastrćti ađ hátíđarsviđinu í Lćkjargötu.

Á síđasta ári sóttu yfir fjörtíu ţúsund manns Hinsegin daga sem er orđin ţriđja stćrsta, ef ekki önnur stćrsta útihátiđ á Íslandi. Fjölbreyttur hópur skemmtikrafta kemur fram á sviđinu í Lćkjargötu, til dćmis drottningarnar Ruth og Vigdis frá Osló, undradrengurinn Namosh frá Berlín , okkar eini sanni Páll Óskar međ nýtt efni, Idol stjarnan Ylfa Lind og hljómsveit, Arnar Ţór međ nýtt lag um hvađ mikilvćgt er ađ vera stoltur, danssöngvatónskáldiđ Namosh frá Berlín, stórleikkonurnar Hanna María Karlsdóttir og Ingrid Jónsdóttir , Allstars međ Evu Maríu og Loveguru, hljómsveitin Eldkex og Ţórunn Lárusdóttir, Magnús Jónsson, Felix Bergsson og fleiri söngvarar úr Kabarett.

Á laugardagskvöldinu verđur síđan bođiđ upp á Gay Pride dansleiki á ţremur stöđum . Páll Óskar heldur uppi fjörinu á NASA , en einnig verđa dansleikir á Pravda og Nelly’s.