Heimasíða Hinsegin daga uppfærð

15.9.2003

Heimasíða Hinsegin daga hefur verið uppfærð. Litlar breytingar eru á notendahluta síðunnar en stjórnendahluti hennar hefur fengið andlitslyftingu og verið betrumbættur.

Breytingarnar fela aðallega í sér nýtt fréttakerfi sem er beintengt netfréttabréfinu en nýja kerfið á að auðvelda stjórnendum að setja inn og uppfæra fréttasíðuna. Til þess að fá netfréttabréfið sent til sín verður fólk að skrá sig á póstlistann. Það er von okkar að þetta gefi góða raun.

H.R.Á.