6.2.2012
Hátíđ Hinsegin daga í Reykjavík er vel ţekkt í útlöndum og ćtla má ađ hundruđ ef ekki ţúsundir ferđamanna sćki hátíđna ár hvert. Iceland Express mun leggja Hinsegin dögum liđ viđ ađ kynna hátíđina enn frekar í öđrum löndum. Erlendar rannsóknir sýna ađ hinsegin fólk ferđast mikiđ og sćkir sérstaklega til landa eins og Íslands ţar sem réttindi samkynhneigđra eru virt. Međ stuđningi sínum vill Iceland Express ţjóna ţessum farţegum eins vel og öđrum farţegum til landsins og til ađ stađfesta ţađ, gekk félagiđ í International Lesbian and Gay Travel Association (ILGTA) á síđasta ári, en ţađ eru alţjóđleg ferđamálasamtök fyrirtćkja sem bjóđa samkynhneigđum ţjónustu sína. Félagiđ mun í samstarfi viđ Express Ferđir bjóđa upp á pakkaferđir á Gay Pride hátíđir í öđrum löndum svo og pakkaferđir á Hinsegin daga í Reykjavík í byrjun ágúst, í samstarfi viđ Hinsegin daga.
Iceland Express og Hinsegin dagar í Reykjavík undirrituđu í dag samstarfssamning sem felur í sér stuđning Iceland Express viđ Hinsegin daga fyrir hátíđ ţeirra í ár. Mun félagiđ sjá um ađ flytja erlenda listamenn sem koma fram á hátíđinni til Íslands og styđja starfsfólk Hinsegin daga til vinnuferđa í útlöndum. Međ samningnum verđur Iceland Express einn helsti stuđningsađili Hinsegin daga.