Kaupfélag Hinsegin daga opnar

15.7.2010

Í hádeginu laugardaginn 17. júlí opna Hinsegin dagar verslun sína í húsnćđi IĐU viđ Lćkjargötu. Ţar verđur kaupfélag hátíđarinnar starfrćkt í ţrjár vikur, allt fram á hátíđisdaginn 7. ágúst. Kaupfélagiđ er opiđ alla daga milli kl. 11–20, líka um helgar.



Í kaupfélaginu er hćgt ađ kaupa VIP-kort hátíđarinnar sem veita ađgang ađ öllu greiddum viđburđum hennar og međ fylgir bolur hátíđarinnar og ýmis annar varningur. Einnig er hćgt ađ kaupa hátíđarbolinn á 3000 kr.
 
Hefđbundiđ VIP-kort kostar 7.000 kr. Einnig er ađ vanda í bođi sérstakt VIP-Platinum kort á 11.000 kr. sem veitir auk ţessa ađgang ađ Hinsegin siglingu um sundin blá og ferđ um Gullna hringinn. Í Kaupfélaginu er einnig hćgt ađ kaupa staka miđa á opnunarhátíđina í Íslensku óperunni og kosta ţeir 1500 kr.



Ýmiss konar varning er ađ finna í versluninni og allt er ţađ regnbogavarningur sem viđ munum síđar kynna hér á síđunni. Hawai-böndin eru ómissandi ađ vanda, fjađraskúfar, grímur og blćvćngir fyrir gönguna og böllin, skartgripir, seglar á ísskápinn, fánar og sitthvađ fleira sem mun berast í búđina fyrstu vikuna sem hún er starfrćkt.

Sjón er sögu ríkari og viđ hvetjum alla til ađ líta viđ í IĐU og kynna sér málin.

Ţá er dagskrárrit Hinsegin daga komiđ út og er í dreifingu ţessa dagana. Ţar má finna allar upplýsingar um hátíđina ásamt greinum um ţá fjölmörgu listamenn sem koma fram á Hinsegin dögum í ár.