10.8.2004
Yfir fjörutíu ţúsund manns sóttu Hinsegin daga í Reykjavík dagana 6. - 7. ágúst og hafa gestir aldrei veriđ fleiri. Hátíđin hófst föstudagskvöldiđ 6. ágúst međ opnunarhátíđ í Loftkastalanum. Uppselt var á opnunina sem var mjög glćsileg. Eftir ađ Heimir Már Pétursson framkvćmdastjóri Hinsegin daga hafđi sett hátíđina, komu fram Heklína og systur hennar frá San Francisco og leikarar frá Hommaleikhúsinu Hégóma. Atriđi Hégóma var einstaklega glćsilegt. Ađ loknum ţessum tveimur atriđum var komiđ ađ tónleikum hjá Maríusi Sverrissyni og hljómsveit. Maríus bauđ upp á mjög góđa sýningu og náđi heljartökum á áhorfendum. Páll Óskar Hjálmtýsson tróđ svo óvćnt upp međ honum í tveimur lögum og gerđi sú uppákoma mikla lukku. Ađ lokinni dagskrá buđu Hinsegin dagar og Corona upp á bjór í anddyri Loftkastalans áđur en fólk streymdi síđan á kvennadansleik í Ţjóđleikhúskjallaranum og karladansleik á Jóni forseta. Full var á báđum stöđum og skemmti fólk sér vel. Á laugardag fór gleđigangan fram. Hún var glćsileg ađ vanda og vöktu sérstaklega athygli ţjóđleg atriđi međ íslenskum sjómönnum og íslenskum konum í ţjóđbúningum. Ađ lokinni göngu var glćsileg dagskrá í Lćkjargötu. Um kvöldiđ voru svo dansleikir á NASA, Jóni forseta og á Nelly's sem allir voru vel sóttir og dönsuđu gestir framundir morgun.