Miđasala í fullum gangi

31.7.2008

Ađeins vika er ţar til Opnunarhátíđ Hinsegin daga fer fram í Háskólabíói fimmtudaginn 7. ágúst. Miđasala gengur vel og eru VIP kort ađ verđa uppseld. Hćgt er ađ kaupa miđa á flesta atburđi Hinsegin daga í ţjónustumiđstöđinni á Laugavegi 33.

Opnunarhátíđin verđur međ glćsilegra móti enda flutt í stćrri sal en nokkru sinni áđur. Undanfarin ár hefur Opnunarhátíđin veriđ í Loftkastalanum sem var löngu sprunginn utan af hátíđinni og ţví var ákveđiđ ađ flytja hana í stóra salinn í Háskólabíói. Miđar á Opnunarhátíđina kosta 1.500 krónur og fást í ţjónustumiđstöđinni á Laugavegi 33, sem er opin frá 13 - 18 alla daga.

Í ţjónustumiđstöđinni má einnig fá miđa á tónleika Carole Pope á Organ á föstudag, kynjaböllinn á Organ og Tunglinu sama kvöld og svo tónleika Swivel og Stereo Total á Organ á laugardagskvöld. Ađ auki má kaupa boli Hinsegin daga og alls kyns varning annan í ţjónustumiđstöđinni.

Í tilefni tíu ára afmćlis Hinsegin daga höfum viđ sett saman vandađan DVD disk međ fjögurra klukkustunda efni. Á disknum er öll dagskrá Hinsegin daga viđ Arnarhól 2007, Gleđigangan 2007, dagskrá í Lćkjargötu 2006, innslög úr ţćttinum Sjáđu á Stöđ 2 sem eru ómetanleg heimild um fyrsta áriđ sem gleđigangan var farin áriđ 2000, predikun Pat Bumgardners í Hallgrímskirkju áriđ 2006 sem og myndbönd frá fyrri árum. Diskurinn kostar ađeins 3.000 krónur.

Ţeir sem ćtla ađ kaupa VIP eđa VIP PLATINUM kort ćttu ađ fara ađ drífa sig. Ţau eru seld í takmörkuđu upplagi og eru ađ verđa uppseld.