InterPride í Reykjavík

30.9.2004

Dagana 7. - 10. október fer fram heimsþing InterPride í Reykjavík. Um eitt hundrað fulltrúar frá Bandaríkjunum, Kanada, Mexico, Brasilíu, Noregi, Svíþjóð, Englandi, Frakklandi, Póllandi, Sviss og Íslandi mæta til þingsins. Í tilefni þingsins verður samkvæmislíf samkynhneigðra í Reykjavík með fjörugra móti yfir ráðstefnu dagana. Öllum er velkomið að taka þátt í því og er dagskráin hér fyrir neðan:


MSC-Ísland

Klúbburinn verður opinn fimmtudag, föstudag og laugardag frá kl. 23:00.


Nordica hótelið

Gala kvöld á Nordica á föstudagskvöldið 8. október. Fordrykkur, þriggja rétta máltíð, skemmtiatriði og dansleikur. Andrea Gylfa syngur, hljómsveitin Californian Cheesburger flytur tvö lög og atriði frá hommaleikhúsinu Hégóma. Veislustjóri verður Jean Francois Tessier. Miðaverð á mat, skemmtun og dansleik 7.000kr. Miðaverð á dansleik að loknum skemmtiatriðum kl. 10:30 er 1.000kr.


Samtökin 78

Stelpurnar ætla að hittast í Samtökunum 78 kl. 21:00 laugardaginn 9. október, áður en haldið er á dansleik í Þjóðleikhúskjallaranum síðar um kvöldið.


Þjóðleikhúskjallarinn

Dansleikur í Þjóðleikhúskjallaranum laugardaginn 9. október. Plötusnúðar verða Andrea Jóns og Georg. Miðaverð 1.000 kr. Einn bjór fylgir miðanum.


Að auki má búast við aukinni umferð á Jóni forseta og Café Cozy á meðan á þinginu stendur.