15.4.2008
Ţađ gleymir enginn Stereo Total sem einhvern tíma hefur séđ ţetta yndislega rokkpar koma fram eins og ţau gerđu svo glćsilega á Hinsegin dögum áriđ 2002. Ţá slóu ţau í gegn og hafa síđan ţá sigrađ heiminn međ tónleikum og hljómdiskum. Stereo Total verđa á Hinsegin dögum 2008.
Ţau Françoise Cactus og Brezel Göring hafa samiđ mikiđ safn af góđum lögum. Sviđsframkoma ţeirra er í senn látlaus og ćrslafull. Ţegar ţau komu á Hinsegin daga áriđ 2002 fyrir milligöngu Íslandsvinarins og listamannsins Wolfgangs Muller, vissu fáir Íslendingar hver ţau voru en innan 24 klukkustunda voru allir ađ tala um ţau. Skjár 1 gerđi umsvifalaust um ţau ţátt sem var sýndur og endursýndur aftur og aftur vegna mikilla vinsćlda og eftirspurnar. Og ađrir fjölmiđlar létu sitt ekki eftir liggja. Ţau urđu umsvifalaust ađ stjörnum á Íslandi og tróđu m.a. upp á óundirbúnum tónleikum víđs vegar um borgina.
Stereo Total blastađi áheyrendur á gamla Spotlight og tróđu svo upp á stóra sviđinu á Ingólfstorgi. Ţađ var í árdaga Hinsegin daga og í síđasta skipti sem útitónleikar hátíđarinnar fóru fram á Ingólfstorgi. Ţađ er ţess vegna heiđur ađ fá ađ hafa ţau á stóra sviđinu viđ Arnarhól í ágúst nćst komandi. En ţau munu einnig verđa međ tónleika á Organ.
Frá ţví Stereo Total kom hingađ síđast hefur hljómsveitin ferđast látlaust um allan heiminn, gefiđ út tugi stórra og smárra hljómdiska í öllum heimsálfum og njóta mikillar virđingar hvar sem er í heiminum. Ţau hafa ekki látiđ frćgđarsólina spilla sér. Eru enn jafn elskuleg og látlaus og ţau hafa alltaf veriđ en um leiđ hrćđilega spennandi og ögrandi međ hressilegri tónlist og kímnum og djúpum textum sem höfđa jafnt til Tótu littlu tíu ára og Tóta gamla áttrćđa.
Í tilefni tíu ára afmćlis Hinsegin daga ţótti viđ hćfi ađ fá ţau Cactus og Göring aftur á Klakann og ţau brugđust vel viđ ţeirri beiđni okkar og ákváđu ađ taka sér langţráđ "sumarfrí" og skella sér til Íslands. Ţađ er óhćtt ađ segja ađ koma ţeirra á Hinsegin daga er heimsviđburđur.
Fariđ á heimasíđu Stereo Total og kynniđ ykkur ţessa frábćru hljómsveit.