Kristinn Gunnar vann samkeppni um nýtt merki

5.4.2008

Kristinn Gunnar Atlason, nemandi viđ Listaháskóla Íslands, vann samkeppni Hinsegin daga um nýtt merki fyrir hátíđina. Merki hans verđa í framtíđinni notuđ í öllu kynningarstarfi Hinsegin daga.

Kristinn Gunnar er 25 ára gamall og stundar nám í grafískri hönnun viđ Listaháskóla Íslands, en ţessi misserin er hann í skiptinámi í listaskóla í Leipzig í Ţýskalandi.  Hann byrjađi snemma ađ teikna og ţrátt fyrir ungan aldur hafa verk hans náđ víđa. Kristinn Gunnar er t.d. höfundur forsíđu símaskrárinnar á ţessu ári. Hann hefur haldiđ tvćr einkasýningar á verkum sínum.

Fyrri sýningin var haldin í tengslum viđ Aldrei fór ég suđur tónlistarhátíđina á Ísafirđi á síđasta ári en seinni sýningin var á Kaffi Sólón í Reykjavík í nóvember í fyrra og kallađist Gćđakonfekt.

Alls bárust tólf hugmyndir um nýtt merki fyrir Hinsegin daga í samkeppninni en dómnefnd var einhuga um ađ hugmyndir Kristins sköruđu fram úr. Verđlaun fyrir bestu tillöguna eru 100 ţúsund krónur og ferđ fyrir tvo til einhvers af áfangastöđum Icelandair.

Hér fyrir neđan má sjá nokkrar af ţeim hugmyndum sem Kristinn Gunnar sendi í samkeppnina, en hann á eftir ađ útfćra ţćr nánar í samráđi viđ stjórn Hinsegin daga.

Hinsegin dagar ţakka öllum ţeim sem sendu hátíđinni tillögur um nýtt merki kćrlega fyrir framlag ţeirra og óskar ţeim velgengni í störfum sínum.