27.2.2008
Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride vekja athygli á vćgast sagt bágbornu ástandi mannréttindamála í Serbíu og ţá alveg sérstaklega alvarlegri stöđu mannréttinda samkynhneigđra og annars hinsegin fólks.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöđva, Eurovision, verđur haldin í Belgrad, höfuđborg Serbíu dagana 20.– 24. maí nćst komandi. Margir ţeirra sem koma ađ söngvakeppninni, bćđi listamenn, búningahönnuđir og ađrir eru samkynhneigđir. Ţá er stór hluti ađdáenda söngvakeppninnar samkynhneigđur, tvíkynhneigđir og transgenderfólk og ćtla má ađ ţađ hyggist fara til Belgrad til ađ fylgjast međ keppninni.
Full ástćđa er til ađ hafa verulegar áhyggjur af öryggi ţeirra. Tilraunir lesbía, homma, tvíkynhneigđra og transgenderfólks til ađ halda Gay Pride hátíđir í Belgrad hafa veriđ barđar niđur af mikilli hörku af andstćđingum tilveruréttar ţeirra og dćmi eru um ađ ţessir menn hafi fylkt liđi ţúsundum saman til ađ berja á nokkrum tugum hugrakkra brautryđjenda mannréttinda í landinu.
Árásir öfgahópa á hinsegin fólk í Serbíu og ţá sérstaklega í Belgrad hafa ítrekađ átt sér stađ án teljandi afskipta lögreglu, sem jafnvel hefur haldiđ sig fjarri slíkum árásum međ skipulögđum hćtti. Eftir liggur fjöldi af stórslösuđu fólki sem jafnvel hefur sumt veriđ handtekiđ fyrir ađ reyna ađ vekja athygli á málstađ sínum.
Hinsegin dagar vara hinsegin fólk viđ ţví ađ fara til Belgrad. Ţađ er aftur á móti fullkomlega eđlilegt ađ margir kjósi ađ gera ţađ engu ađ síđur. Hinsegin dagar skora á lesbíur, homma, tvíkynhneigđa og transgenderfólk sem fer til Belgrad í tengslum viđ Eurovision ađ gćta ţess ađ vera ekki eitt á ferli í borginni og reyna ađ forđast eins og hćgt er ađ vekja athygli á kynhneigđ sinni, nema öryggisgćsla sé fullnćgjandi.Einnig skora Hinsegin dagar á Ríkisútvarpiđ ađ huga ađ öryggi íslensku ţátttakendanna og taka ţessa ógn alvarlega. Ţá skora Hinsegin dagar á íslensk stjórnvöld ađ vekja athygli serbneskra stjórnvalda á ţessum áhyggjum og ţrýsta á Serba um ađ standa viđ evrópska og alţjóđlega mannréttindasáttmála og samninga, sem tryggja eiga lesbíum, hommum, tvíkynhneigđum og transgenderfólki sömu mannréttindi og ađrir íbúar Evrópu njóta.
Myndband af árásum á Belgrad Pride 2001