Hinsegin dagar hefjast á hádegi á fimmtudag

7.8.2007

Hinsegin dagar hefjast á hádegi fimmtudaginn 9. ágúst međ opnun Klúbbs Hinsegin daga á Q-bar, ţar sem stemmingin á Stonewall verđur endurvakin. Páll Óskar mun syngja nokkur lög úr söngbók Judy Garland.

Eins og flestir vita hófst alţjóđleg barátta samkynhneigđra međ uppţotunum á Stonewall hinn 27. júní 1969, eđa fyrir tćplega 40 árum. Hinsegin hátíđir eđa Gay Pride eiga rćtur sínar í ţessum uppţotum. En á ţessum degi var veriđ ađ jarđsyngja söng- og leikkonuna Judy Garland.

Ţess vegna ţótti samstarfsnefnd Hinsegin daga sjálfsagt ađ reyna ađ endurvekja stemminguna á ţessum einum elsta starfandi bar samkynhneigđra međ ţví ađ koma saman á Q-bar í hádeginu og heiđra Judy.

Q-bar býđur upp á sérstakan pride-matseđil og VIP korthafar njóta sérstakra kjara alla helgina í klúbbnum, fá 10% afslátt af öllum mat og drykk.

Ađ kvöldi fimmtudags minnum viđ svo á stórskemmtilega tónleika međ Diddu og hljómsveitinni Mina rakastan sinua Elvis og Sarah Greenwood og hljómsveit hennar GSX á Dómó, en ţeir hefjast stundvíslega klukkan 20:30. Miđar seldir viđ innganginn en VIP kort gilda. Ađ loknum tónleikunum á Dómó, ţeytir Q-boy skífum og syngur nokkur lög á Q-bar. En Rotweiler hundarnir munu hita upp fyrir hann.