Klúbbur Hinsegin daga

28.7.2007

Á Hinsegin dögum í ár er tekin upp sú nýjung að bjóða upp á klúbb Hinsegin daga sem verður opinn alla fjóra hátíðardagana og býður upp á sérstaka dagskrá. Klúbburinn opnar í hádeginu á fyrsta degi pride, fimmtudaginn 9. ágúst á Q-bar. VIP korthafar njóta sérstakra kjara í klúbbnum.

Á degi gleðigöngunnar, laugardaginn 11 ágúst, mun enginn annar en virtasti House- plötusnúður Bandaríkjanna,  Aaron Carl,  troða upp og skemmta samkynhneigðum sem og öðrum unnendum góðrar House-tónlistar á Q Bar. Aaron er fæddur og uppalinn í Detroit í Bandaríkjunum og hefur búið til tónlist frá blautu barnsbeini.

Tónlistarferill Aaarons hófst fyrir alvöru árið 1996 þegar hann gaf út samtímis út tvær plötur.  Önnur platan var "Crucified" sem inniheldur tónlist sem myndi flokkast á frummálinu "Deep House Music" og "Down" sem er hans stærsta platan hingað til. Aaron hefur einnig gert garðinn frægan með lögum á borð við "Sky", "My House", No No", og "21 Positions".

Í Detroit sér Aaron (ásamt öðrum plötusnúði að nafni DJ Trench ) um partý sem kallast Jackit Required og eru það nokkurs konar "underground" partý sem eiga sér stað með góðum millibilum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Aaron heimsækir landann en hann spilaði fyrir nokkrum árum á Thomsen klúbbnum sáluga og gerði allt vitlaust.

Aaron sem er sjálfur samkynhneiðgur hefur spilað á Gay Pride í Paris þannig að þetta er ekki fyrsta og örugglega ekki síðasta Pride-ið sem hann mun spila á. Starfsfólk Q Bars hlakkar mikið til að fá Aaron í heimsókn og lofa gríðarlegri dansstemmningu.

Frekari upplýsingar um Aaron: 

http://myspace.com/aaroncarl

http://www.aaroncarl.com/

og nýju My Space síðu Q Bars:

www.myspace.com/qbariceland